Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag
Já jæja , báðir foreldrar mínir skriðnir á sextugsaldurinn. Hlaut að koma að þessu. Ég telst ennþá tillölulega ung, verð ekki hálfþrítug fyrr en seint í júní svo þetta sleppur. Vona bara að hún eigi skemmtilegan dag því hún á það skilið blessunin.
Annars er ég búin að vera alltof löt við að blogga, hélt að ég yrði duglegari eftir að ég fékk netið heim en nei, ekki að gerast. Svo endar þetta alltaf eins, búin að gera svo margt skemmtilegt að ég fer bara að telja upp allt sem ég er búin að vera að gera, mest lítið spennandi að lesa nema fyrir fjölskylduna. Svo best að hafa þetta bara stutt:
- Smári kom í heimsókn með leynigest eins og sést á myndinni fyrir neðan, gjörsamlega trufluð helgi sem fólst í djammi, hláturköstum, náttfötum, þynnku, rugli, kökudegi og fullt af öðrum hlutum sem hægt er að lesa um að síðunum þeirra, smára linkur og freyjarut.blogspot.com.
- Búin að vera í heimaprófi í allan mars, skil handan við hornið (helgina)
-Fór yfir brúnna og hitti Heiðdísi, Katrínu, Sigrúnu og kærasta, einstaklega hressandi, sérstaklega að tala íslensku
-Mia vinkona okkar hérna er að koma í heimsókn á morgun svo maður verður að rembast við aðvera skemmtilegur um helgina milli læritarna.
- Endalaust skemmtilegt afmæli hjá Candice vinkonu minni frá Suður-Afríku á St. Patrick´s Day sem er snilldardagur, ætla að halda hann heilagan hér eftir
En já nenni að ekki að hanga í tölvunni í læripásunni, er að verða biluð í hausnum á að stara á skjáinn allan daginn. Meira seinna.
Lag dagsins Friday I´m in love, er mikið að hlusta á Clash, Smiths, Cure og Joy Division þessa dagana og það er bara ansi hressandi, skora á ykkur að prófa.
Adjö Þórhildur


3 Comments:
At 12:09 PM,
Anonymous said…
hildur hér:) jájájájájájájá ÓJÁ...ég held að það sé kannski bara málið að mæta á sæl vinkona:)
nú verða sko allar útihátíðar tæklaðar:)
At 4:32 PM,
Anonymous said…
Skilaðu afmæliskveðju til Candice frá mér :-)
En maður á eftir að lifa á þessari helgi ansi lengi, var ekkert smá ógó gaman hjá okkur þarna !
Svo gleymdir þú að minnast á allar útskýringarnar þínar, helgin einkenndist af þeim líka...
At 4:33 PM,
Anonymous said…
Já og þetta var s.s. ég að kommenta hérna síðast ! Kv. Smári Jökull
Post a Comment
<< Home