Ástrós Hind 4. áraSkrapp til Árósa um helgina í afmælispartý til Hindar. Er ennþá að jafna mig eftir allar kökurnar, takk Hugrún. Skemmtum okkur vel, fórum út að borða, spiluðum prinsessu spil, perluðum og lærðum ballerínu spor af dvd disk og dönsuðum, allt mjög nauðsynlegt að kunna. En nú er ég komin aftur til Malmö og alvara lífisins tekin við, all harkalega, þar sem heimaprófið beið í póstkassanum þegar ég kom inn. En þá er bara að byrja sem er gott, þá get ég verið búin þegar Mia kemur að heimsækja mig í enda mars.
Var að fatta að aðra helgina í júlí á að skíra nýjasta fjölskyldumeðliminn svo sú helgi kemur því ekki til greina. En held að þriðja helgin sé fín, tvær helgar síðan fyrsta helgin/fylleri var og tvær helgar í Versló. Þá.... er.... það.... ákveðið!! er það ekki annars:)

8 Comments:
At 4:42 PM,
Hlíf said…
Ég mæti! Og kannski með fleiri með mér, aldrei að vita...Þriðja helgin í júlí hljómar bara vel ;-)
At 1:26 PM,
Valla said…
heyrðu ég stefni svo sannarlega á að mæta þetta árið :) no doubt!
At 1:29 PM,
Freyja Rut said…
Það mundi þá vera 17. júlí? Þá eru reyndar 3 vikur í Versló sem er ekki fyrr en 5.-8. ágúst þetta árið. Fleiri helgar, meira gaman.
:D
Kveðja,
hin súpersæla Freyja,
alveg með djammdagatalið á hreinu!
At 2:13 AM,
Rebekka said…
Já það ætti að ganga upp. Vá þið eruð alveg eins þ.e þú og hind. Alveg eins klipping, vantaði bara mömmu þína á myndina:)
At 3:50 AM,
Eyrún said…
júbb fín dagsetning, mánuður síðan ma-djammið var og 3 vikur í versló...mjöööög góð dagsetning. tilkynni komu mína:)
At 7:11 AM,
Kolbrun said…
jibbý kóla :) ég mæti eins og áður hefur komið fram hér á þessum þræði :)
At 5:21 AM,
maja said…
Passaðu þig á þessum brjáluðu mönnum í Malmö með byssur!!!
Hvað er í gangi
knús
Mæja
At 1:07 PM,
Anonymous said…
Sætt barn! Hei er að koma til köben um næstu helgi;) Láttu mig vita ef þú hefur tíma til að koma og hitta mig:) Kys og kram
Heiðdís
Post a Comment
<< Home